Ég er búin að yfirgefa strætólífið,það var ágætt,að yfirgefa það þeas ekki lifa því. Þurfti að fresta ýmsu og breyta,skrópa og seinka til þess að ferðast með þessari almannasamgöngu. Ég borga frekar fyrir lúxusinn,þennan lúxus sem brumminn minn,allir gírar eru þó farnir að virka á honum og ég leiðar minnar.
Ég er ekki að nenna að skoða fréttirnar þessa dagana,þarf þess svo sem ekkert þar sem ég fæ allar fréttir úr öllum hornum sem ég kem í. Alveg búin að fá nóg af öllu krepputalinu,allt snýst um banka og aftur banka, ég bíð bara eftir að ég fái bréf frá Glitni þar sem þeir biðja mig um lán.
Aaaaallavega, ætlaði einmitt ekki að tala um þetta.
Ég er búin að eyða nóttinni í að pikka inn eitt stykki viðtal, það varð að 26 bls. og ég á tvö viðtöl eftir. Plús öll hin verkefnin, ég hreinlega hef ekki tíma til þess að mæta í skólann næstu daga, er of upptekin heima að læra.
Er líka búin að fá lokaritgerðina og leiðbeinandann minn samþykktan og þarf að demba mér í að verða mér úti um öll rannsóknarleyfi og fara svo að garma í lokaverkefninu mínu ásamt öllu hinu.
En talandi um það að ég ætlaði að forðast fréttir, ég þurfti að hringja í lækninn og lendi á bið og hvað haldiði,í stað tónlistarinnar þá fékk ég að hlusta á fréttatímann takk, til tals komu Dabbi kóngur,Bretarnir og bankarnir, eeeiinmitt það sem ég nenni ekki að hlusta á þessa dagana.
En ég er svefnvana, úrill og með koffínsjokk, ætla að fá mér meira koffín og hleypa voffum út í rokið og síðan er það skólinn, heim að læra, í kaffi til Birnunnar, í vinnuna og svo...já örugglega drepast.